Jóna Björg Sætran

Starfssvið Jónu Bjargar Sætran einkennist af því að samnýta þekkingu sína og reynslu af menntunarfræðum, áratuga reynslu af kennslu í grunn- og framhaldsskólum, markþjálfun, hugrænni atferlismeðferð, námskeiðahaldi, fyrirlestrum, kennslufræði, fyrirtækjarekstri og árangursfræðum í víðum skilningi til að opna fólki sýn á mátt einstaklingsins til að hafa áhrif á eigin velferð, vellíðan og lífshamingju.
Jóna Björg Sætran M.Ed. stofnaði Námstækni ehf. (kennsla og ráðgjöf) árið 2004.

Coaching / markþjálfun
Jóna Björg lauk alþjóðlegri ACC vottun sem markþjálfi frá ICF(International Coach Federation) 2011 og endurnýjaði vottunina í júlí 2018. (ACC = Accosiate Certified Coach). Í dag er Jóna Björg með 450 tíma reynslu í markþjálfun og er í framhaldsnámi fyrir efri vottunarstig í markþjálfun, PCC (= Professional Certified Coach).
Jóna Björg var í hópi þeirra sem unnu að stofnun Félags markþjálfa á Íslandi árið 2006.
Jóna Björg Sætran er félagi í ICF Íslandi og einnig í ICF Global.
Sjá nánar um markþjálfun hjá Jónu Björgu á www.coach.isj
Árangursfræðin - Þú getur það sem þú vilt og einbeitir þér að!

Jóna Björg starfaði um árabil sem leiðbeinandi á árangursnámskeiðum Brian Tracy International á Íslandi.
Athygli Jónu Bjargar beindist að árangursfræðunum árið 1996 er hún las bók Brian Tracy Hámarksárangur, en í kjölfar þess ákvað hún að tileinka störf sín árangursfræðunum í víðum skilningi. 1998 gerðist hún svo leiðbeinandi á árangursnámskeiðum Brian Tracy Phoenix leiðinni til hámarksárangurs í samstarfi við umboðsaðila þess hér á landi,
2004 fór Jóna Björg af stað með persónulega leiðsögn og "coaching" fyrir einstaklinga í fyrirtæki sínu Námstækni ehf.

Jóna Björg Sætran hefur einnig lokið 30 ECTS eininga eins árs þverfaglegu hagnýtu námi í Hugrænni atferlismeðferð, HAM, í Endurmenntun Háskóla Íslands. (2011-2012).
Jóna Björg nýtir aðferðafræði hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) í vinnu sinni með HAM skjólstæðinga sem kljást við félagsfælni, kvíða, vægt þunglyndi og svefnvandamál. HAM nýtist einnig frábærlega þegar unnið er að því að byggja upp / bæta sjálfstraust, sjálsvirðingu, andlega vellíðan og aukna gleði.
Jóna Björg býður upp á HAM einkatíma / samtalsmeðferðir bæði í Reykjavík og einnig á netinu í gegnum SKYPE. Þannig er búseta úti á landi eða erlendis engin fyrirstaða lengur.

PhotoReading auðveldar fólki að halda einbeitingu við lesturinn, skilningur á efninu eykst sem og leshraðinn og mun auðveldara verður að fá yfirsýn yfir t.d. námsefnið. Sjá www.photoreading.is
2004 hóf Jóna Björg samstarf við bandarískt fyrirtæki Learning Strategies Corporation (LSC) í Bandaríkjunum og öðlaðist kennsluréttindi til að kenna efni Paul Shceele (hjá LSC) PhotoReading
Námstækni ehf. býður upp á námskeið í PhotoReading í september og janúar (námskeiðin henta vel nemendum í framhaldssnámi).

Hefur þú séð DVD efnið The Secret (Leyndarmálið) eða lesið samnefnda bók? Marie Diamond er ein af árangursfræðingunum sem þar koma fram og átti stóran þátt í að efnið The Secret varð að veruleika. Námstækni ehf. býður upp á Feng Shui ráðgjöf og námskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki / stofnanir. www.fengshui.is
Jóna Björg hefur mikla reynslu af uppsetningu námskeiða og kennsluefnisgerðar og hefur samið nokkrar kennslubækur, bæði fyrir grunnskóla og framhaldsskóla auk kennsluefnis fyrir eigin námskeið. Í ágúst 2003 var Jóna Björg kynnt sem "kennari mánaðarins" í samtökunum Innovative Teachers sem stofnuð voru í kjölfar ráðstefnu sem Microsoft hélt evrópskum kennurum í upplýsinga og tölvutækni en hún sat þá ráðstefnu sem annar tveggja íslenskra fulltrúa í boði Microsoft.
Hér kemur vellíðan og velgengni allra fjölskyldumeðlima nr. 1. Fjölskyldan, vinir, kunningjar - og þeir vinir mínir í framtíðinni sem ég hef ekki kynnst ennþá eru efst á listanum

- samning kennsluefnis fyrir nemendur á öllu aldir.
- halda námskeið í sjálfseflingu, hvernig megi auka sjálfstraust og betri líðan.
- kynna námstækni fyrir nemendum á öllum aldri, en ekki síst fyrir fólki sem hefur átt erfitt með nám.
Dæmi: Pjattrófuvefnum pjatt.is http://pjatt.is/author/jonabjorg/ um markþjálfun, sjálfshjálparefni og Feng Shui
Jóna Björg sat Alþjóðanefnd Félags kvenna í atvinnurekstri 2010 - 2012 og vann þar m.a. að undirbúningi stórrar ráðstefnu ásamt öðrum í nefndinni.
* Að reka fyrirtæki og vinna með mannauð fyrirtækja
Eftir að hafa setið námskeið Iðntæknistofnunar, Konur og fyrirtæki 1986 tók Jóna Björg þátt í að stofna Netið, samskiptanet kvenna sem vildu stuðla að áhrifum kvenna í atvinnulífinu.
Brautargengi um stofnun fyrirtækja (á vegum Impru)
Rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur Máttur kvenna I 2007 og
Máttur kvenna II 2008 (Viðskiptaháskólinn á Bifröst ).
* B.A. próf frá H.Í.1980 í dönsku og uppeldisfræði ásam 15 viðbótareiningum í sálfræði og uppeldisfræði, auk kennsluréttindaráms fyrir framhaldsskóla.
* Háskólinn í Kaupmannahöfn, dönskunám fyrir Dani 1974 - 1976
* Framhaldsnám fyrir kennara frá Kennaraháskólann í Danmörku 1973
* Kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands 1972.